Skilmálar

Almennt

Neytendur eru hvattir til að lesa skilmála þessa vandlega áður en þeir versla í vefversluninni www.vinnufatnadur.is.

Um notkun vefsíðu og vefverslunar Vinnufatnaðar.is gilda þessir skilmálar. Með því að nota vefsíðu og vefverslun samþykkir neytandi að hafa kynnt sér, skilið og samþykkt skilmála þessa, eins og þeir eru á hverjum tíma.
Vinnufatnaður - Gróinn ehf. kt. 670209-0590  er staðsett að Búðarhellu 4. Símanúmer er 848-6972 (Baldur).
Vinnufatnaður áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum þessum án fyrirvara.

Verð

Öll verð á vefsíðunni eru birt með fyrirvara um prentvillur.

Vinnufatnaður áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, til dæmis vegna rangra verðupplýsinga, og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir án fyrirvara. Þetta á einnig við ef villur koma fram í reiknireglum vefverslunar.

Nákvæmni upplýsinga

Unnið er eftir fremsta megni að tryggja að upplýsingar og vörumyndir í vefverslun séu réttar. Þó geta komið upp tilvik þar sem minniháttar litamunur eða munur á umbúðum er til staðar. Að öðru leyti eru allar upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða smávægilegar uppfærslutafir.


Greiðsluleiðir

Greiðslur í vefverslun er hægt að framkvæma með greiðslukorti eða með millifærslu inn á reikning Gróinn ehf. Varan er eign Gróinn ehf. þar til andvirði hennar hefur verið greitt að fullu.

Lög og varnarþing

Skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt, og laga um neytendakaup nr. 48/2003. Að auki gilda ákvæði gildandi laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga (nú nr. 77/2000) og laga um neytendasamninga nr. 16/2016. Allir frestir sem neytendur eiga rétt á samkvæmt lögum nr. 96/1992 og lögum um neytendasamninga nr. 16/2016 byrja að líða þegar vara hefur verið móttekin. Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög, og rísi mál vegna hans eða skilmála þessa skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur eða Héraðsdómi Reykjaness eftir því sem við á.